Bruce Springsteen og Iceland Airwaves 2023
Manage episode 440475456 series 1315174
محتوای ارائه شده توسط RÚV. تمام محتوای پادکست شامل قسمتها، گرافیکها و توضیحات پادکست مستقیماً توسط RÚV یا شریک پلتفرم پادکست آنها آپلود و ارائه میشوند. اگر فکر میکنید شخصی بدون اجازه شما از اثر دارای حق نسخهبرداری شما استفاده میکند، میتوانید روندی که در اینجا شرح داده شده است را دنبال کنید.https://fa.player.fm/legal
Iceland Airwaves fór fram um helgina í rokkborginni Reykjavík. Rúmlega 150 listamenn og hljómsveitir spiluðu meira en 250 tónleika í aðal-dagskrá og off venue eins og það er kallað. Rokkland var á Airwaves og við heyrum tóndæmi og spjall við Airwaves-fólk í þættinum í dag; listafólk, gesti og starfsfólk, og líka í næsta þætti eftir viku. Elín Sif Hall, Ásgeir Andri Guðmundsson, Kristján Kristjánsson, Ása Dýradóttir, Árni Hjörvar ofl. koma við sögu í dag. En Bruce Springsteen er líka fyrirferðarmikill í þættinum í dag. Bruce skrifaði fyrir nokkrum árum sjálfsævisögu; Born to Run, sem vakti mikla athygli um allan heim. Hún hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál og núna var hún að koma út á Íslensku í þýðingu Magnúsar Þórs Hafsteinssonar sem var fréttamaður á RÚV í eina tíð og sat síðan á alþingi fyrir Frjálslynda flokkinn eitt kjörtímabil. Magnús sem hefur skrifað og þýtt margar bækur segir okkur frá Bruce og bókinni - og ég bað hann líka um að velja nokkur lög með Bruce sem við hlustum á.
…
continue reading
139 قسمت